C.14. Virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun - [email protected]
Verkefnið
Markmið: Að þekkingargrundvöllur stefnumótunar og framkvæmdar á sviði byggðamála verði styrktur með aðgengi að alþjóðlegum straumum og stefnum á því sviði.
Stutt lýsing: Virk þátttaka verði í alþjóðlegu samstarfi, svo sem undir merkjum Nora, Nordregio, Norðurslóðaáætlunar, ESPON og OECD, og þekkingar- og hugmyndafræðilegur grundvöllur byggðaaðgerða þannig styrktur og efldur.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, aðrar þekkingar- og rannsóknarstofnanir, lands¬hluta¬samtök sveitarfélaga, sveitarfélög og atvinnulífið.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 11 og 17, einkum undirmarkmið 11.a, 17.13, 17.14, 17.16 og 17.17.
- Tillaga að fjármögnun: 410 millj. kr. úr byggðaáætlun.