Starfshópur um CBD-olíu
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að yfirfara gildandi löggjöf m.t.t. framleiðslu og markaðssetningar CBD-olíu sem fæðubótarefnis.
Starfshópnum er jafnframt falið að skrifa frumvarp sem ráðherra tekur ákvörðun um hvort leggja skuli fram á vorþingi 2022.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Iðunn Guðjónsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar,
Björg Þorkelsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu,
Sindri Kristjánsson, tilnefndur af Lyfjastofnun,
Grímur Ólafsson, tilnefndur af Matvælastofnun.