Starfshópur sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um slysatryggingar almannatrygginga nr. 45/2015 og móta tillögur að nýju frumvarpi til laga um slysatryggingar almannatrygginga
Helstu verkefni hópsins eru:
- endurskoðun slysahugtaks laganna
- endurskoðun tilvísana laganna í önnur lög
- endurskoðun á ákvæðum er varða bótarétt vegna slysa við ferðir til og frá vinnu, afmörkun hugtaka og atvinnusjúkdóma
- endurskoðun á ákvæðum er varða örorkumat varanlegrar örorku slysatrygginga almannatrygginga.
Starfshópinn skipa
- Berglind Ýr Karlsdóttir, tiln. af Sjúkratryggingum Íslands, formaður
- Anna Birgit Ómarsdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins
- Ágúst Þór Sigurðsson, fulltrúi félagsmálaráðuneytisins
- Björn Þ. Rögnvaldsson, tiln. af Vinnueftirliti ríkisins
- Ragna Haraldsdóttir, tiln. af Tryggingastofnun ríkisins
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 9. september 2019. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir 1. janúar 2020.