Hoppa yfir valmynd
21. maí 2024 Innviðaráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi um gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum. Í frumvarpinu er gerð tillaga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða framlög til sveitarfélaga bjóða upp á skólamáltíðir.

Tillögur um gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru liður af aðgerðum stjórnvalda til að styðja við gerð langtímakjarasamninga á vinnumarkaði og leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks. Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga gáfu út sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir tengdar kjarasamningar 7. mars sl.

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra: „Þetta mál er ekki bara afar mikilvæg forsenda í þjóðhagslega mikilvægum kjarasamningum sem hafa það meginmarkið að  viðhalda efnahagslegum og félagslegum stöðugleika á Íslandi til næstu ára, heldur er þetta réttlátt og mikilvægt mál. Með þessari sögulegu samstöðu sem náðist við kjarasamningsborðið um að ná árangri fyrir okkur öll sköpum við jafnara og betra samfélag, fyrir börnin okkar og þar með fyrir alla íbúa.“

Rúmir 3,7 milljarðar fyrir hvert skólaár

Í frumvarpinu er lagt til að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiði framlög til sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða en Jöfnunarsjóður greiðir þegar ýmis önnur framlög til sveitarfélaga. Lagt er til að á árunum 2024-2027 bætist árlegt framlag úr ríkissjóði við tekjur Jöfnunarsjóðs. Samkvæmt yfirlýsingu stjórnvalda frá því í mars 2024 er gert ráð fyrir að fjárhæðin fyrir heilt skólaár skuli nema 3.750 m.kr.

Miðað er við að framlög vegna skólamáltíða skiptist hlutfallslega til sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan. Aðeins þau sveitarfélög sem bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir munu fá framlög.

Starfshópur meti áhrif

Í frumvarpinu er lagt til að starfshópur verði skipaður til að leggja mat á nýtingu og áhrif framlags vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða. Hópnum verður falið að meta áhrif á markmið um að auka jöfnuð og draga úr fátækt meðal barna, hvort allir árgangar nýti sér gjaldfrjálsar skólamáltíðir, reynslu og ánægju nemenda og ávinning einstakra sveitarfélaga og landshluta. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúa innviðaráðherra, sem jafnframt er formaður, fulltrúa mennta- og barnamálaráðherra og tveimur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 30. júní 2026.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum