Hoppa yfir valmynd
21. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tæplega 40 milljónum króna veitt í styrki til atvinnumála kvenna

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað og fengu 33 verkefni styrki samtals að fjárhæð 38.000.000 kr. 

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðlakonum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi. Það er félags- og vinnumarkaðsráðherra sem veitir styrkina. 

Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum.

Unnt er að sækja um styrki vegna vinnu við gerð viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.

Í ár bárust 244 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið þær á undanförnum vikum. Nefndina skipa þær Bergrún Íris Sævarsdóttir, Elín Gróa Karlsdóttir, Guðrún Stella Gissurardóttir, Hanna Dóra Björnsdóttir og Soffía Gísladóttir.

Hæsta styrkinn í ár, 2.5 milljónir króna, hlutu þær Sandra Gísladóttir fyrir verkefnið Barilli Enterprise Karaokee og Alice Sowa fyrir verkefnið Ullarkögglar.

Af öðrum verkefnum má nefna þróun á fatnaði fyrir hreyfihamlaða, vöruþróun Huldustígs sem snýst um fræðslu um álfatrú, vöruþróun íslenskra hárvara, þróun fatnaðar fyrir barnshafandi konur, íslenskukennsla byggð á gervigreind, stofnun textílendurvinnslu, þróun á sápum úr notaðri olíu, þróun á vörum úr þangi og snyrtivörum úr hörpuskel og ræktun burnirótar svo eitthvað sé nefnt.

Að þessu sinni var styrkhöfum er fengu styrk til gerðar viðskiptaáætlunar boðið upp á þátttöku í Fyrirtækjasmiðju á netinu. Markmið smiðjunnar, sem var í umsjón Einars Sigvaldasonar hjá Senza, var að þátttakendur myndu þróa viðskiptahugmynd sína og halda kynningu fyrir dómnefnd. Í boði var ein milljón króna í verðlaun fyrir bestu kynninguna. Verðlaunin hlutu þær Fanný Ragna Gröndal og Þórhildur Stefánsdóttir fyrir verkefni sitt Lilli Tígur sem er þáttaröð fyrir börn.

Í dómnefnd sátu þær Fida Abu Libdeh, Harpa Magnúsdóttir og Elínóra Sigurðardóttir.

Lista yfir verkefni sem hlutu styrk má finna á vefsíðu verkefnisins

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum